Mömmuleikfimi | 25. sept
Upplýsingar Tímar Kennarar Salir Panta námskeiðKennarar
Tímar
Mánudaga
Miðvikudaga
Föstudaga
6 vikna námskeið hefjast 25. september
Sérsniðið námskeið fyrir konur sem vilja stunda markvissa og örugga líkamsrækt á meðgöngu og eftir barnsburð og geta tekið börnin með sér í tíma.
Yfirumsjón með námskeiðinu hefur Dagmar Heiða Reynisdóttir, menntaður hjúkrunarfræðingur, þolfimikennari og einkaþjálfari. Dagmar vann lokaverkefni sitt "Líkamsrækt á meðgöngu" við hjúkrunarfræðideild HÍ árið 2004 og hefur verið með mömmu- & meðgöngunámskeið í Sporthúsinu og Bootcamp síðastliðin 12 ár.
Frekari upplýsingar varðandi mömmuleikfimi sendast á dagmar@fullfrisk.com
TVÆR TÍMASETNINGAR Í BOÐI:
Kl. 09:40 - mán, mið og fös
Kl. 10:50 - mán, mið og fös
Hægt er að velja um að vera 2x í viku eða 3x í viku
Verð 2x í viku = 24.900 kr.
Verð 3x í viku = 28.900 kr.
Skráningarferlið:
Formleg skráning getur ekki tekið gildi fyrr en greitt er.
Við skráningu á námskeið samþykki ég skilmála Sporthússins
Meðlimir Sporthússins fá afslátt af námskeiðinu. Best er að greiða í móttöku okkar eða senda póst á alma@sporthusid.is.
Greiðslumátar eru eftirfarandi:
1. Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni.
2. Kaupa námskeið hér í vefverslun hér að neðan, velja námskeið og setja vöru í körfu, velja fjölda námskeiða og greiða þar. Hægt er að greiða með debet- og kreditkortum sem og Netgíró.