564 4050

Bootcamp

Upplýsingar Kennarar Salir Panta námskeið
Verð 21.990,- kr.

Salir

Salur 1

Kennarar

Róbert Traustason

Stöðvastjóri og þjálfari Bootcamp

3


Boot Camp stöðin í Sporthúsinu Kópavogi býður upp á fjölda æfingakerfa svo þú getur fundið það sem hentar þér best.

Alhliða form

Boot Camp og Base Camp eru sambærileg æfingakerfi þar sem unnið er mikið með eigin líkamsþyngd ásamt sandpokum, ketilbjöllum, boxpúðum o.fl. Þú finnur ekki fjölbreyttari æfingar svo þú staðnar ekki og það verður ávallt spennandi að mæta á æfingu!

Munurinn milli þessara kerfa liggur mestmegnis í ákefðinni og hraðanum. Í Boot Camp halda þjálfarar uppi hraðri keyrslu allan tímann og ýta þér út fyrir þægindarammann. Æfingarnar eru virkilega fjölbreyttar og þú munt kynnast nýjum miserfiðum hreyfingum hjá okkur mjög reglulega.

Í Base Camp færðu að vinna meira á eigin hraða og einblína á að ná virkilega góðum tökum á grunnhreyfingunum áður en farið er í flóknari útgáfur og meiri keyrslu.

Styrkur og hraði

Ef markmið þitt er að hámarka styrk þinn, þá er Strength & Conditioning námskeiðið fyrir þig. Þar notum við stangir, lóð, ketilbjöllur og þyngdar æfingar með eigin líkamsþyngd. Auk þess að auka hámarksstyrk muntu einnig auka snerpu þína, úthald og tæknigetu í lyftingum.

Úthald

Samhliða því æfingakerfi sem þú stundar hjá okkur, býðst þér þess kostur að mæta með þjálfara á opnu æfingarnar okkar. Við bjóðum upp á hlaupaþjálfun og útiæfingar sem henta fyrir getustig allra, hvort sem þeir eru byrjendur eða að bæta við færni sína. Þar vinnur þú í úthaldi þínu, bætir súrefnisupptökuna þína sem gerir þig ekki eingöngu að skilvirkari hlaupara heldur einnig í öðrum úthaldsgreinum.

Með því að æfa hjá okkur getur þú sett þér fjölbreytt og krefjandi markmið og nýtt þér færa þjálfara til að ná öllum þínum markmiðum. Sama hversu ólíkar áherslur hver og einn hefur, getur hann fundið viðeigandi þjálfun með æfingakerfum okkar. Auk þess eru þjálfarar okkar alltaf reiðubúnir að aðstoða þig með þær aukaæfingar sem þú gætir óskað til að ná enn sérhæfðari markmiðum þínum.

Hægt er að kaupa 1 mánuð, 3 mánuði og 12 mánuði hér í vefverslun okkar neðst á síðunni. Allar leiðir gefa þér frjálsan aðgang í alla tíma okkar. Skiptakort er hægt að nálgast í móttöku Sporthússins og samninga er hægt að gera HÉR

Sjá fulla verðskrá hér

Skráningarferlið

Formleg skráning getur ekki tekið gildi fyrr en greitt er. Greiðslumátar eru eftirfarandi:
1. Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni.
2. Kaupa námskeið hér í vefverslun hér að neðan, velja námskeið og setja vöru í körfu, velja fjölda námskeiða og greiða þar. Hægt er að greiða með debet- og kreditkortum sem og Netgíró.


Verð 21.990,- kr.