Fjölskyldutími 16. mars kl: 17.30
Frábær fjölskylduskemmtun
Föstudaginn 16. mars bjóðum við í fjölskyldutíma.
Nú er tækifæri fyrir foreldra að æfa með börnunum sínum!
Við hvetjum fjölskyldumeðlimi að koma saman í tíma, æfa og skemmta sér.
Frítt er fyrir alla korthafa + 1 gest sem og börn korthafa 5-15 ára.
Farið verður í leiki þar sem fullorðnir æfa með börnunum og leiki þar sem börnin stjórna fullorðnum.
Boðið verður upp á hleðslu, kókómjólk og skorna ávexti í lok tímans.
Kennari: Bjarney
Kennt í sal 1
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!