564 4050

Sporthúsið opnar 15. apríl

Í ljósi breytinga á reglugerð heilbrigðisráðherra verður starfsemin hjá okkur, frá og með 15. apríl, eftirfarandi:


• Allir viðskiptavinir fæddir fyrir 2005 þurfa að skrá sig inn gegnum augnskanna (að undanskildum fótboltahópum, sem skila nafna- og kennitölulista)

• Grímuskylda er í sameiginlegum rýmum hússins, iðkandi má taka grímu niður þegar æfing hans hefst

• Skráning verður í alla opna hóptíma, BootCamp, CrossFit og svæði í tækjasal. Starfsmenn munu hafa yfirsýn og tryggja að öllum reglum reglugerðarinnar sé fylgt (upplýsingar varðandi skráningarsíðu Sporthússins má sjá HÉR)

• Viðvera hvers iðkanda er að hámarki 60 mín í húsinu og því má einungis skrá sig í einn tíma á dag

• Hver iðkandi heldur sig innan síns svæðis út alla æfinguna og óheimilt er að deila búnaði

• Hámarksfjöldi á hvert svæði er aldrei meiri en 20 manns

• Hámarksfjöldi í hóptíma og námskeið er mismunandi eftir sölum. Ekki er hægt að bóka fleiri í tíma en hámarks fjölda í viðkomandi sal

• Tveggja metra regla skal virt

• Stóra tækjasal er skipt í fjögur hólf og er hámarks fjöldi í hvort um sig 20 manns auk starfsmanna

• Gullið er eitt hólf og er hámarks fjöldi þar 20 manns

• Ávallt skal sótthreinsa búnað bæði fyrir og eftir notkun

• Vinsamlegast forðist hópamyndun fyrir og eftir tíma og stoppið ekki lengur í stöðinni en þörf er á

• Pottasvæði er lokað

• Barnagæsla er lokuð


Opnunartími Sporthússins er eftirfarandi:

Mán-fim kl. 05:50-23:30
Fös kl. 05:50-22:30
Lau kl. 08:00-17:00
Sun kl. 09:00-20:00

Sýnum hvort öðru virðingu, göngum vel um og virðum fjarlægðarmörk

Vinsælt

Ganga frá áskrift

Diskó Fimi - NÝTT

Crossfit Grunnur | 20. maí

CrossFit Comeback | 4. og 6. júní

CrossFit Ævintýrabúðir 9-12 ára | 2024

SkillRow Róðratímar - Hefjast 6. feb

Mömmuleikfimi | 3. apríl