564 4050

Sporthúsið opnar 13. janúar

Við opnum miðvikudaginn 13. janúar klukkan 5:50 (ath. fyrstu tímar hefjast kl. 06:00).

Samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra er líkamsræktarstöðvum heimilt að opna aftur, með takmörkunum, miðvikudaginn 13. janúar.

Í Sporthúsinu munum við fylgja reglugerðinni og leggja okkur fram við að fylgja öllum tilmælum sóttvarnarlæknis einnig.

Allir viðskiptavinir okkar þurfa að skrá sig í tíma í gegnum skráningakerfi Sporthússins eða skráningarkerfi hverrar stöðvar fyrir sig (CrossFit Sport, CrossFit Suðurnes, SuperForm o.s.frv.)

Við munum bjóða uppá fjölbreytt úrval af hóptímum og einnig verður hægt að skrá sig í tíma í æfingarsali okkar og upphitunarlínu. Þjálfarar verða alltaf á staðnum til að aðstoða og framfylgja því að búnaður sé sótthreinsaður fyrir og eftir notkun.


Eftirfarandi fyrirkomulag er viðhaft í öllum okkar hóptímum:

• Hver einstaklingur skal virða 2 metra regluna
• Grímuskylda er á öllum svæðum, þar til æfing hefst
• Hámark í hvern tíma ræðst af stærð aðstöðunnar og skal tryggja að lágmarki 2 metra fjarlægð í næsta iðkanda. Stranglega er bannað að víkja frá ákvörðuðum hámarksfjölda
• Viðskiptavinir eru beðnir að mæta ekki í sinn tíma nema í mesta lagi 5 mínútum áður en hann hefst og vera ekki lengur en 5 mínútur að yfirgefa stöðvarnar eftir að tíma líkur.
• Öll hópamyndun á sameiginlegum svæðum er bönnuð
• Starfsmenn gæta að því að sóttvörnum sé fylgt. Gerist einhver sekur um að fylgja ekki fyrirmælum starfsmanna verður honum vísað úr aðstöðunni
• Viðskiptavinur skal sótthreinsa búnað fyrir og eftir notkun og óheimilt er að deila búnaði.
• Öll sameiginleg svæði eru lokuð, svo sem teygjusvæði, búningsklefar, baðaðstaða o.s.frv. Að auki er barnagæsla lokuð
• Gætum þess að grímur séu endurnýjaðar reglulega og geymdar að viðunandi hátt meðan þær eru ekki í notkun
• Gætum vel að persónubundnum sóttvörnum og hjálpumst að við að komast í gegnum þetta á öruggan hátt

með kærri kveðju,
Starfsmenn Sporthússins

Vinsælt

Ganga frá áskrift

Diskó Fimi - NÝTT

Crossfit Grunnur | 20. maí

CrossFit Comeback | 4. og 6. júní

CrossFit Ævintýrabúðir 9-12 ára | 2024

SkillRow Róðratímar - Hefjast 6. feb

Mömmuleikfimi | 3. apríl