Fótbolti
Í Sporthúsinu eru 2 fótboltavellir með fullkomnu gervigrasi. Vellirnir eru 20x39 m að stærð sem er tilvalið fyrir 4 á 4 eða 5 á 5, hentar vel fyrir vinahópa,afmæli, fyrirtæki eða knattspyrnulið sem vantar fullkomna inniaðstöðu á veturnar.
Nánast er hægt að bóka tíma á öllum tímum sólahringsins, hvort sem það er snemma morguns, í hádeginu, seinnipart dags eða á kvöldin. Einnig er hægt að bóka tíma um helgar. Hver tími er 50 mínútur en eins er hægt að leigja tvöfaldan tíma. Að tíma loknum er tilvalið að skella sér í rjúkandi heitan pott og tvennskonar gufu sem er í sameiginlega svæðinu við búningsaðstöðu.
Áhugasamir hafi samband við Kidda í síma 771-4010 eða sendið póst á netfangið: kiddi@sporthusid.is