TÝR | Glíma/box fyrir 13-16 ára
Upplýsingar Tímar Kennarar Salir Panta námskeiðKennarar
Tímar
Mánudaga
Þriðjudaga
Miðvikudaga
Fimmtudaga
22 vikna haustönn unglingastarfs TÝR MMA hefst 2. janúar 2023
Ætlað unglingum á aldrinum 13-16 ára
Tímarnir eru kenndir á mán og mið kl. 18:00-19:00 + þri og fim kl. 17:30-18:30
Í unglingastarfi Týs er kennd sjálfsvörn auk tækni úr bardagaíþróttum eins og brasilísku jiu jitsu, kickboxi og standandi glímu. Önnin er sett upp á skemmtilegan hátt þar sem þau byrja að læra að verjast úr bestu mögulegu stöðu og færast svo yfir í meira krefjandi stöður eftir því sem líður á önnina. Kennd verða uppgjafartök, tækni til að stjórna mótaðila, högg og spörk og varnir gegn þeim. Unglingarnir eru frædd um afleiðingar þess að beita þessari tækni á vitlausan hátt. Við viljum skapa eins öruggar aðstæður á æfingum og hægt er. Mikil áhersla er á öryggi og fræðslu tengda uppgjafartökum og höfuðhöggum og afleiðingum sem geta komið af þeim ef vitlaust er farið að. Allar æfingar eru undir öruggri leiðsögn þjálfara.
Mikil áhersla er lögð á gott félagslíf og samheldni. Við viljum halda uppi góðum anda á æfingum og skapa gott andrúmsloft svo allir geta lært á sínum hraða. Stefnt verður á að hittast utan æfinga einstöku sinnum til þess að þjappa hópnum enn betur saman ef aðstæður leyfa. TÝR MMA hefur fulla trú á að með því að læra sjálfsvörn eykst sjálfsöryggi, agi og styrkur til að takast á við daglegar athafnir en æfingarnar veita líka góða útrás sem getur skilað sér í betri einbeitingu og líðan.
Búnaður: Gott er að eiga glímu galla (Brazilian jiu jitsu), Boxhanska og Munnhlíf
Skráningarferlið:
Formleg skráning getur ekki tekið gildi fyrr en greitt er.
Við skráningu á námskeið samþykki ég skilmála Sporthússins
Greiðslumátar eru eftirfarandi:
1. Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni.
2. Kaupa námskeið hér í vefverslun hér að neðan, velja námskeið og setja vöru í körfu, velja fjölda námskeiða og greiða þar. Hægt er að greiða með debet- og kreditkortum sem og Netgíró.
3. Greiða í gegnum Sportable og nota frístundarstyrk HÉR.