TÝR | Barnastarf 9-12 ára | 30. maí
Upplýsingar Tímar Kennarar Salir Panta námskeiðKennarar
Tímar
Mánudaga
Miðvikudaga
Sumarönn barnastarfs TÝR MMA hefst 30. maí
Fyrir börn á aldrinum 9-12 ára
Tímarnir eru kenndir á mánudögum og miðvikudögum kl 16:45 - 17:30
Hægt er að kaupa 6 vikur í senn.
Markmið námskeiðsins er að kenna börnum sjálfsvörn í gegnum skemmtilega leiki og æfingar.
Sú tækni samanstendur af brazilísku jiu jitsu, kickboxi og standandi glímu.
Meðal þess sem þau læra eru glímutök, högg og spörk.
Einungis er einblínt á tækni þegar högg og spörk eru æfð og þau eru æfð á púða.
Við viljum skapa eins öruggar aðstæður á æfingum og hægt er.
Mikil áhersla er á öryggi og fræðslu tengda uppgjafartökum og afleiðingum þeirra, sé vitlaust farið að.
Allar æfingar eru undir öruggri leiðsögn þjálfara.
Mikil áhersla er lögð á gott félagslíf og samheldni.
Við viljum halda uppi góðum anda á æfingum og skapa gott andrúmsloft svo allir geti lært á sínum hraða.
Stefnt verður á að hittast utan æfinga einstöku sinnum til þess að þjappa hópnum enn betur saman, ef aðstæður leyfa.
TÝR MMA hefur fulla trú á að með því að læra sjálfsvörn eykst sjálfsöryggi, agi og styrkur til að takast á við daglegar athafnir en æfingarnar veita góða útrás sem getur skilað sér í betri einbeitingu og líðan. Aukið öryggi er ómetanlegt.
Búnaður:
Gott er að eiga glímu galla (Brazilian jiu jitsu).
Gráðanir:
Í hverjum mánuði geta börnin fengið strípu á beltið sitt ef þau mæta vel og haga sér vel á æfingum. Í lok hverra annar er belta gráðun, þar sem þau fá nýjan lit á beltið sitt.
Yfirþjálfari er Imma Helga.
Hún hefur 23 ára reynslu í bardagaíþróttum og 10 ára reynslu af þjálfun. Hún er margfaldur Íslandsmeistari í hnefaleikum og er ósigruð á Íslandi. Hún hefur einnig keppt í karate og MMA með góðum árangri.
HÉR getur þú notað frístundarstyrk ef kaupa á 12 vikur
VERÐ:
6 vikur - 30. maí - 6. júlí VERÐ 17.500
6 vikur - 11. júlí - 18. ágúst VERÐ 17.500
Skráningarferlið:
Formleg skráning getur ekki tekið gildi fyrr en greitt er.
Við skráningu á námskeið samþykki ég skilmála Sporthússins
Greiðslumátar eru eftirfarandi:
1. Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni.
2. Kaupa námskeið hér í vefverslun hér að neðan, velja námskeið og setja vöru í körfu, velja fjölda námskeiða og greiða þar. Hægt er að greiða með debet- og kreditkortum sem og Netgíró.
3. Greiða í gegnum Sportable og nota frístundarstyrk HÉR.