TÝR | TÝR Grunnur
Upplýsingar Tímar Kennarar Salir Panta námskeiðKennarar
Tímar
Mánudaga
Miðvikudaga
Fimmtudaga
Næsta TÝR Grunnnámskeið hefst 9. janúar
Hefur þig alltaf langað að prófa bardagaíþróttir?
Týr býður upp á grunnnámskeið í bardagaíþróttum. þar sem þú getur prófað Brasilískt Jiu-Jitsu , Kickbox og Sjálfsvörn fyrir götuna.
Námskeiðið er skipt í 2 vikur og kennt á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Farið verður í mismunandi bardagaíþróttir hvern dag og öðlast iðkandinn innsýn inn í hverja íþrótt.
Námskeiðið er kennt:
Mán og mið kl. 19:00-20:15 og
fimt kl. 19:30-20:45
Þjálfarar á námskeiðinu verða meðal annars Jón Viðar, Imma Helga og Karlotta og hafa þau margra ára reynslu í bardagaíþróttum og þjálfun
Eftir námskeiðið getur iðkandi mætt í alla framhaldstíma Týs
14 ára aldurstakmark er á þetta námskeið
Skráningarferlið:
Formleg skráning getur ekki tekið gildi fyrr en greitt er.
Við skráningu á námskeið samþykki ég skilmála Sporthússins
Greiðslumátar eru eftirfarandi:
1. Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni.
2. Kaupa námskeið hér í vefverslun hér að neðan, velja námskeið og setja vöru í körfu, velja fjölda námskeiða og greiða þar. Hægt er að greiða með debet- og kreditkortum sem og Netgíró.