CrossFit Mömmur | 9. jan
Upplýsingar Tímar Kennarar Salir Panta námskeiðTímar
Mánudaga
Miðvikudaga
Föstudaga
Næsta 6 vikna námskeið hefst 9. janúar
Mömmu CrossFit er fyrir verðandi mæður sem vilja halda sér í formi á meðgöngunni og nýbakaðar mæður sem vilja koma sér aftur að stað eftir meðgöngu
Tímarnir eru undir handleiðslu reyndra þjálfara þar sem áhersla er lögð á fjölbreyttar styrktaræfingar ásamt ýmsum þol- og fimleikaæfingum. Auðvelt er að aðlaga æfingarnar þannig að þær henti hverjum og einum. Krílin eru að sjálfsögðu velkomin með.
ATH. Þátttakendur þurfa að hafa tekið grunnnámskeið í Crossfit
Tímarnir eru kenndir mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10:00-11:00
Verð: 20.990,- kr. - fyrir 6 vikur
- Allir iðkendur í Mömmu CrossFit geta einnig sótt alla aðra tíma í töflu CrossFit Sport.
HÉR er hægt að sjá tímatöflu. - Allar mömmur sem eru meðlimir í CrossFit Sport geta sótt mömmutíma.
- Hægt er að kaupa 6 vikna aðgang í Mömmu CrossFit hér að neðan.
- Einnig er hægt að gera áskriftarsamning og mæta í mömmutíma. Áskriftarsamningar eru gerðir í móttöku Sporthússins.
Skráningarferlið:
Formleg skráning getur ekki tekið gildi fyrr en greitt er.
Við skráningu á námskeið samþykki ég skilmála Sporthússins
Greiðslumátar eru eftirfarandi:
1. Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni.
2. Kaupa námskeið hér í vefverslun hér að neðan, velja námskeið og setja vöru í körfu, velja fjölda námskeiða og greiða þar. Hægt er að greiða með debet- og kreditkortum sem og Netgíró.