564 4050

TÝR | Glíma fyrir börn 6-12 ára

Upplýsingar Tímar Kennarar Salir Panta námskeið
Verð 49.500,- kr.
22 vikna námskeið hefst 4. janúar

Salir

TÝR salur

Kennarar

Imma Helga Arnþórsdóttir

Þjálfari TÝR MMA
8688598

Jón Viðar Arnþórsson

Framkvæmdarstjóri ISR í Evrópu

Tímar

Mánudaga

Kl. 16:30 Týr salur

Miðvikudaga

Kl. 16:30 Týr salur

22 vikna vorönn Barnastarfs TÝR MMA hefst 4. janúar 2023

Barnastarf

Barnastarf Týs er fyrir börn á aldrinum 6-12 ára.

Tímarnir eru kenndir á mánudögum og miðvikudögum kl 16:30-17:15

Markmið námskeiðsins er að kenna börnum sjálfsvörn í gegnum skemmtilega leiki. Sú tækni samanstendur af brazilísku jiu jitsu, kickboxi og standandi glímu. Meðal þess sem þau læra eru glímutök, högg og spörk.

Einungis er einblínt á tækni þegar högg og spörk eru æfð og eru þau æfð á púða.
Við viljum skapa eins öruggar aðstæður á æfingum og hægt er.
Mikil áhersla er lögð á öryggi og fræðslu tengda uppgjafartökum og afleiðingum þeirra, sé vitlaust farið að. Allar æfingar eru undir öruggri leiðsögn þjálfara.

Við viljum halda uppi góðum anda á æfingum og skapa gott andrúmsloft svo allir geti lært á sínum hraða. Stefnt verður á að hittast utan æfinga einstöku sinnum til þess að þjappa hópnum saman enn betur. Við hjá TÝ höfu fulla trú á að með því að læra sjálfsvörn eykst sjálfsöryggi, agi og styrkur til að takast á við daglegar athafnir en æfingarnar veita góða útrás sem getur skilað sér í betri einbeitningu og líðan.

Aukið öryggi er ómetanlegt

T gult ristað


HÉR getur þú notað frístundarstyrk

Verð kr. 49.500,-


Skráningarferlið:

Formleg skráning getur ekki tekið gildi fyrr en greitt er.
Við skráningu á námskeið samþykki ég skilmála Sporthússins

Greiðslumátar eru eftirfarandi:
1. Koma niður í Sporthús, skrá og greiða í afgreiðslunni.
2. Kaupa námskeið hér í vefverslun hér að neðan, velja námskeið og setja vöru í körfu, velja fjölda námskeiða og greiða þar. Hægt er að greiða með debet- og kreditkortum sem og Netgíró. 3. Greiða í gegnum Sportable og nota frístundarstyrk HÉR.


Verð 49.500,- kr.
22 vikna námskeið hefst 4. janúar